|
28.05.2010 00:20:06 / lokaferd
Kláruðum trailerinn í dag og sýndum Agli hann uppí skóla, töluðum við Guðnýju um lokaskýrsluna og byrjum á henni á mánudaginn c: Síðan bara prufukeyrslan á mánudaginn og setja myndbandið inná youtube ^^ Síðan er möguleiki á að segja fólki sem vilja þetta á disk að hafa bara samband við okkur á útskriftinni.
»
26.05.2010 21:19:08 / lokaferd
Í dag komu Hugrún og Theó heim til Sunnu og við kláruðum að klippa allt myndbandið og gera vooða voða fínt ^-^ Síðan gerðum við gróft cut af trailernum og völdum lag fyrir hann =] Ætlum að brenna á disk fyrir hópinn okkar og aukalega fyrir aðra sem vilja. Ein spurning, þurfum við að kaupa diskana sjálfar eða styrkir skólinn okkur?
»
26.05.2010 12:22:01 / lokaferd
Í gær kom Hugrún til Sunnu með tölvuna sína og við káruðum að klippa og byrjuðum á trailerinum. ekkert meiraaa jú borðuðum
»
21.05.2010 23:40:41 / lokaferd
Í dag mættum Hugrún til Sunnu klukkan 11 og byrjuðum að klippa og ákveða lög og færa klippur til eins og venjulega.Þessir dagar eru mjög mikið allir eins. við byrjuðum aðeins á trailer-inum en það var ekki mikið.Við erum komin með sirka lengdina á hvað myndbandið verður langt og við erum búin að finna prentfyrirtæki sem við viljum láta prenta fyrir okkur á diskana. Því að Hugrún þurfti að drífa sig heim hættum við klukkan fjögur.
Hvað á trailerinn að vera langur ?
»
20.05.2010 23:33:03 / lokaferd
Í dag komu Hugrún og Theó heim til Sunnu klukkan ellefu og við byrjuðum að klippa. Við vorum búnar að velja lög við eitthvað af atriðunum og settum þau inná, klipptum og ákváðum hvaða parta við ætluðum að hafa og færðum klippur til. YAY
Vonandi eitthvað meira á morgun ^-^ Minna en þrír í öðru veldi.
»
19.05.2010 22:52:20 / lokaferd
í dag komum við*sunnaoghugrún* uppí skóla klukkan 11 og byrjuðum að 'converta' allt efnið sem við vorum með. Á meðan það var í gangi þá fórum við í bekkjarmyndatöku og árbókarmyndatöku og svo í mat .Eftir það fórum við uppá tölvustofu og byrjuðum að klippa og finna lög sem pössuðu við það sem var að gerast í myndbandinu. Svo fórum við heim til Sunnu og fengum okkur að drekka og héldum svo áfram að klippa hjá henni. Þegar klukkan var orðin 4 þurfti Hugrún að drífa sig heim. Svo seinna um kvöldið þegar Hugrún kom heim hélt Hugrún áfram að klippa.
BÆÆÆ minna en þrír í öðru veldi.
»
18.05.2010 14:46:28 / lokaferd
Í dag mættum við*hugrúnogsunna* klukkan tíu. Þá byrjuðum við á að bíða eftir Mac tölvunni af því að Atli, Daníel, Aron, Orri og Þorkell voru að nota hana En svo hættu strákarnir eftir smástund og þá gátum við notað tölvuna. Þegar við vorum að byrja að klippa komumst við að því að við gátum ekki notað forritið í tölvunni, því það var ekki með nýjustu uppfærslu. Þannig að við fórum heim til Hugrúnar og náðum í Macbook-ina hennar. Þegar við komum síðan upp í skóla fórum við niður í mat og héldum síðan áfram eftir það. Þegar við ætluðum að byrja var vesen með að flytja myndbandið yfir á tölvunna hennar Hugrúnar, því gamli Mac-inn var tregur HUGRÚN VAR VOÐA DUGLEG AÐ FLYTJA ALLT YFIR Á SÍNA TÖLVU =D síðan kom Guðný og hjálpaði okkur með að koma myndbandinu inn í forritið. Eftir það þurftum við að bíða heillengi á meðan þær voru að perrast sín á milli C:< *bluetooth-a* Nú erum við að blogga blogg á meðan við bíðum aðeins lengur, eftir það höldum við heim á leið að nýju.
Veriði sæl kæru lesendur. Heil að sinni. Minna en þrír í öðru veldi punktur.
»
17.05.2010 14:46:35 / lokaferd
Lokaferðin punktur
Lokaverkefnið byrjaði á því að við tókum upp allt sem gerðist í lokaferðinni punktur Ferðin hófst 10punkturmaí og við komum heim miðvikudaginn 12punkturmaí og byrjuðum að klippa video-ið 17punkturmaí punktur
Fyrsti vinnudagurinn punktur
Mættum klukkan ellefu og byrjuðum að tala við Egil og Hugrún skrifaði undir samning já punktur síðan fórum við upp á tölvustofu og byrjuðum að setja efnið af video vélinni inná tölvunna punktur Eftir það byrjuðum við að klippa efnið gróflega og raða eftir tímaröð punktur Við ætlum núna að halda áfram að vinna í verkefninu og halda heim á leið um fjögur leytið punktur
ELSKUM YKKUR Í ÖÐRU VELDI MINNA EN ÞRÍR PUNKTUR
»
17.05.2010 09:05:12 / BlogCentral
Eigandi þessa nýja bloggs hefur ekki gefið út fyrstu bloggfærsluna sína. Viðkomandi er án efa í óða önn að velja sér flott útlit, aukahluti, hlaða upp myndum og semja meistaraverk til að færa á spjöld sögunnar. Við bjóðum viðkomandi að sjálfsögðu velkominn á BlogCentral!
»
|